Baldýringsnámskeið
hjá Annríki – Þjóðbúningar og skart
Námskeiðið er 36 klukkustundir
- Kennt einu sinni í viku í sex vikur, frá 18:30 – 21:30
 - Nemendur setja upp borða eða annað sambærilegt (efni ekki innifalið)
 - Efni í prufur er innifalið
 - Nemendur mæta með lítil skæri, svartan og ljósan tvinna ásamt nálum
 - Fjöldi 6-8 nemendur
 
Leiðbeinendur eru Guðrún Hildur Rosenkjær, klæðskeri, kjólameistari og sagnfræðingur
Fróðleikur
- Baldýring er orð sem notað er yfir hluta þess handverks sem á ensku heitir golden embroidery
 - Handverkið var notað á búninga hefðarfólks og hershöfðingja
 - Saumað er með silki– eða vírþræði sem lagður er yfir mót sem mynda lauf eða blóm.
 - Baldýring er notuð á borða á upphluti, faldtreyjur, faldkraga og belti
 - Skreytiaðferðina er einnig hægt að nota á veski, skartgripi eða annað
 - Sérhæft handverk sem þróast hefur og lifir með þjóðbúningunum
 - Verkið er vandasamt en afar fjölbreytt og skemmtilegt
 

Baldýring á Viðeyjarbúning í vinnslu