Notkunarskilmálar fyrir vefsíðu Annríkis
Þessir notkunarskilmálar eru settir til að uppfylla reglur um persónuvernd og vafrakökur.
1. Almennt
Þessi vefsíða Annríkis er í eigu og er rekin af Annríki – þjóðbúningar og skart ehf., kt.700693-2799, Suðurgötu 73, Hafnarfiði, Íslandi.
Annríki – þjóðbúningar og skart ehf., er skuldbundið og rekið skv. lögum og reglum íslenska ríkisins. Hér eftir er vísað vefsíðunnar sem vefsíðu Annríkis.
Vinsamlegast lestu þessa notkunarskilmála vandlega áður en þú notar vefsíðu Annríkis.
Með notkun á þessari vefsíðu samþykkir þú að vera bundin/n af þessum skilmálum og til að fara eftir öllum viðeigandi lögum og reglum.
Ef þú samþykkir ekki þessa notkunarskilmála, önnur viðeigandi skjöl og takmarkanir sem þér eru gerðar grein fyrir á meðan þú notar þessa vefsíðu, þá:
- er þér óheimilt að nota ekki að neinu leiti þessa vefsíðu
- samþykkir þú að nota ekki vefsíðu Annríkis
2. Skilgreiningar
Á vefsíðu Annríkis og í notkunarskilmála gildir:
Við og okkar í öllum föllum íslensku á við um fyrirtækið Annríki-þjóðbúnigar og skart ehf.
Þú og ykkar í öllum föllum íslensku á við um þig eða þá sem eru að nota þessa vefsíðu (einnig í gegnum þriðja aðila).
Vefsíða og vefsíðan á við um þessa vefsíðu.
„Notkunarskilmálar” og „skilmálar” eiga við „notkunarskilmála vefsíðu Annríkis.
3. Umfang þessara skilmála
Þessir skilmálar eiga aðeins við þessa vefsíðu, alla notkun á þessari vefsíðu og innri síðum þessarar vefsíðu.
4. Upplýsingavernd og kökur
Vefsíða Annríkis notar tól til að greina hvernig notendur nota síðuna.
Greiningartólið notar „vafrakökur“ sem eru textaskjöl sem er komið fyrir á tölvunni þinni. Þessar skrár safna nafnlausum upplýsingum um nethegðun og skrá upplýsingar um gesti vefsíðunnar.
Upplýsingarnar sem vafrakakan sendir um notkun þína á vefsíðunni (þar með talin IP-tala þín) er send til greiningartóla hjá þriðja aðila.
Þessar upplýsingar eru síðan notaðar til að meta notkun gesta á síðunni og til að taka saman tölulegar upplýsingar um notkun vefsíðunnar til að sjá hvenær, hvaðan og hversu margir nota síðuna og hvort þeir hyggist nota hana, þ.e. kaupa eitthvað á henni, skrá sig á póstlistann o.s.frv.
Hvorki við né greiningartól þriðja aðila munum nota upplýsingarnar til að safna persónugreinanlegum upplýsingum þeirra sem nota síðuna.
Þjónustuaðilar munu ekki tengja IP-tölu við neinar aðrar upplýsingar þess sem á hana og notar síðuna.
Hvorki Annríki eða þriðji aðili munu tengja IP-töluna við persónuupplýsingar notanda.
Við munum aldrei tengja upplýsingar sem við söfnum við neinar persónugreinanlegar upplýsingar notanda.
Allar upplýsingar sem eru settar inn á síðuna (s.s. tölvupóstfang, símanúmer o.s.frv.) munu aldrei verða seldar, þeim dreift eða að öðru leyti deilt með þriðja aðila.
Allar upplýsingar sem eru gefnar til að Annríki geti haft samband, eru aðeins til þess, og til að Annríki, geti sent fréttabréf með nýjustu tilboðum og upplýsingum um hvað sé í boði hjá fyrirtækinu hverju sinni.
- Frekari upplýsingar um HTTP kökur: en.wikipedia.org/wiki/HTTP_cookie
- Frekari upplýsingar um persónugreinanlegar upplýsingar:en.wikipedia.org/wiki/Personally_identifiable_information
Ef þú hefur frekari spurningar varðandi greiningu þriðja aðila á upplýsingum vefsíðunnar, vinsamlegast hafið samband við annriki@simnet.is
Við tökum fram að við förum án undantekninga eftir lögum íslenska ríkisins, nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
5. Hugverk
Allar upplýsingar, gögn og efni sem sett er fram á þessari vefsíðu, þar með talin (en takmarkast þó ekki við) nöfn, vörumerki, námskeið, verð og uppsetning vefsíðunnar; er bundið höfundarrétti, vörumerkjavernd, vernd upplýsingabanka og öðrum reglum um vernd á hugverki.
Þú mátt aðeins nota þessar upplýsingar og efni handa þér persónulega en ekki til að selja áfram eða í þeim tilgangi að hagnast á því sjálf/ur.
Öll notkun á upplýsingum og efni án leyfis er óleyfileg og mun brjóta í bága við notkunarskilmála þessarar vefsíðu og mun brjóta í bága við lög um vernd á hugverki.
Ef slík ólögleg notkun kemur upp þá áskiljum við okkur rétt til að hefja lögsókn eða á annan hátt verja okkur, án þess að tilkynna þér það sérstaklega fyrirfram.
6. Öryggi
Þú getur aðeins notað þessa vefsíðu fyrir þig persónulega og þú ert ábyrg/ur fyrir því að geyma með þér þær upplýsingar sem þú setur á vefsíðuna s.s. nafn, lykilorð ef við á og bókun á námskeið ofl.
Ef þú af einhverjum ástæðum telur að aðgangur þinn að vefsíðunni sé ekki lengur öruggur td. vegna þess að þú hefur týnt upplýsingunum, verið rænd/ur eða eitthvað annað hefur komið upp sem veldur því að þriðji aðili gæti haft aðgang að upplýsingum þínum, þá skaltu án tafar breyta þeim upplýsingum sem við á.
7. Viðeigandi notkun
Á þessari vefsíðu:
- Samþykkir þú að vera fjárhagslega ábyrg/ur á allri notkun á vefsíðunni, þ.e. nafni þínu/aðgangi (einnig ef þú ert að nota þinn aðgang fyrir aðra);
- Þér er óheimilt að gera falskar bókanir, þ.e. bókanir sem eru ekki raunverulegar og fella þarf niður. Kostnaður vegna falskra bókanna falla á þig. Hægt er að hætta við bókun allt að staðfestingu bókunar sem þú þarft að slá inn (eftir að þér er sendur staðfestingarkóði í símanúmerið sem þú gafst upp við bókun).
- Þér er óheimilt að gera nokkuð á þessari vefsíðu sem getur valdið því að vefsíðan hrynji eða ógni öryggi hennar.
- Þú ert ábyrg/ur fyrir öllum gjöldum, sköttum, skyldum og því sem upp kemur við notkun vefsíðunnar, að undanskildum þeim sköttum sem við greiðum sjálf.
Við leyfum aðgang þinn að síðunni án tímatakmakanna en við gefum okkur rétt til, algjöran og án fyrirvara, til að draga til baka þann rétt, takmarka eða breyta þjónustuaðgengi þínu að vefsíðunni.
8. Breytingar á notkunarskilmálum þessarar vefsíðu
Við áskiljum okkur fullan rétt til að breyta þessum skilmálum hvenær sem er og slíkar breytingar munu gerast strax og við breytum þessum texta.
Áframahaldandi notkun þín á síðunni og aðgangur er bundinn því að þú samþykkir þessa breyttu skilmála.
Við áskiljum okkur einnig rétt, án þess að tilkynna það öðrum, til að gera fyrirvaralausar breytingar á vefsíðunni.
9. Hlekkir á aðrar vefsíður
Þessi vefsíða gæti innhaldið hlekki á aðrar vefsíður.
Við stjórnum hvorki né getum breytt þeim upplýsingum, vörum og innihaldi slíkra síðna.
Notkun þín á þessum síðum er á þína eigin ábyrgð.
10. Fyrirvari um ábyrgð
Upplýsingarnar og þjónustan sem birtist á þessari vefsíðu getur innifalið ónákvæmni, villur og úreltar upplýsingar.
Við gefum okkur ekki að allar upplýsingar eigi við þig eða að þjónustan henti þér. Upplýsingarnar birtast eins og þær eru án ábyrgðar.
Við tökum enga ábyrgð á slíkum villum í upplýsingum um þjónustu eða að upplýsingar eigi við það sem verið er að selja/setja fram, titla og höfundarrétt.
Með því að nota þessa vefsíðu samþykkir þú að þú munir aldrei valda skaða beint eða óbeint vegna notkunar á vefsíðunni eða vegna innihalds hennar, þar með talið að upplýsingarnar hverfi, hvort heldur sem er vegna þess að þú brýtur þessa skilmála, skaðar (einnig með vanrækslu), skemmir vöruna (vefinn/innihald) eða á nokkurn annan hátt.
Ofangreindur fyrirvari um ábyrgð nær þó aðeins til þess sem leyfilegt er skv. íslenskum lögum.
11. Bótakrafa
Það er skilyrði notkunar á vefsíðunni að þú samþykkir að bæta, verja og fría okkur ábyrgð gegn öllum kröfum, útgjöldum og skemmdum sem koma upp vegna notkunar þinnar á vefnum.
12. Ýmislegt
Ef við höfum gleymt að setja eitthvað hér inn í þessa skilmála sem við erum þó vernduð gegn vegna notkunar þinnar á vefnum skv. íslenskum lögum og reglum, þá höfum við þó ekki afsalað okkur rétti okkar gagnvart einum né neinum.
Ef einhver hluti þessara skilmála eru dæmdir ógildir eða óframkvæmanlegir þá mun sá hluti verða fjarlægður úr skilmálunum án þess að það breyti neinu um skilmálana að öðru leyti.
13. Gildandi lög, tungumál og lögsaga
Með því að nota þessa vefsíðu samþykkir þú þessa skilmála og aðgerðir sem verða vegna þeirra, komi upp einhver deilumál eða kröfur vegna eða tengd notkun á vefsíðunni. Öll deilumál munu verða afgreidd skv. íslenskum lögum og þú samþykkir það með notkun á síðunni.
Hinsvegar munum við hefja lögsókn gegn hverjum þeim sem brýtur þessa notkunarskilmála á Íslandi eða hvar sem sá sem brýtur þá er.
14. Meðferð tölvupósts
Vinsamlegast athugið að tölvupóstar frá Annríki og viðhengi þeirra eru eingöngu ætluð þeim sem tölvupósturinn er stílaður á og gætu innihaldið upplýsingar sem eru trúnaðarmál.
Hafir þú fyrir tilviljun, mistök eða án sérstakrar heimildar tekið við tölvupósti og viðhengjum hans biðjum við þig að fara eftir 9. mgr. 47. gr. laga um fjarskipti nr. 81/2003 og gæta fyllsta trúnaðar, hvorki lesa efni þeirra né skrá þau hjá þér né notfæra þau á nokkurn hátt og tilkynna okkur samstundis að þau hafi ranglega borist þér.
Brot gegn þessu varða bótaábyrgð og refsingu skv. 74. gr. laganna.
15. Samfélagsmiðlar
Hinar svokölluðu samfélagslegu viðbætur („plug-ins”) á samfélagsmiðlum eru notaðir á vefsíðum okkar, sérstaklega Facebook’s „Like” viðbótin. Facebook.com, vefsíðan er starfrækt af Facebook Inc., 1601 S. California Ave, Palo Alto, CA 94304, USA.
Viðbætur eru venjulega merktar með Facebook vörumerkinu. Auk Facebook viðbóta, þá notum við einnig viðbætur frá Instagram sem er í eigu Facebook Inc., „Google+” (starfrækt af: Google Inc., Amphitheatre Parkway, Mountain View, CA 94043, USA) og af „Twitter” (starfrækt af: Twitter, Inc., 1355 Market St, Suite 900, San Francisco, CA 94103).
Eftirfarandi útskýringar varðandi Facebook eiga einnig við um þessa tvo aðila með viðeigandi breytingum. Þú getur fundið ítarlegri upplýsingar um gagnnotkun á „Google+” and “Twitter” á eftirfarandi slóðum
https://policies.google.com/privacy?hl=is&gl=is og http://twitter.com/privacy.
Ef þú heimsækir eina af vefsíðum okkar sem er með með„viðbót” þá mun veraldrarvafrinn þinn útbúa hlekk yfir á vefþjóna Facebook og sú staðreynd að þú heimsóttir vefsíðuna okkar mun vera áframsent til Facebook, jafnvel þó að þú sért ekki tengd(ur) á Facebook og án tillits til þess hvort þú hefur virkjað viðbótina, það er að segja smellt á hana.
Ef þú ert tengdur inn á Facebook á meðan heimsókn þinni stendur á vefsíðum okkar, þá getur Facebook tengt vefsíður okkar við notenda aðgang þinn hjá þeim. Ef þú smellir á „Like” hnapp þá mun sú aðgerð vera send til Facebook og geymd þar svo þú getur deild „Like” upplýsingunum með þínum vinum á Facebook. Það sama á við ef þú notar „Public”, „Share” eða „Share with friends” aðgerðirnar sem eru virkar á sumum af vefsíðum okkar.
Við getum ekki haft áhrif á eðli og umfang þeirra gagna sem eru send til Facebook. Ennfremur vitum við ekki nákvæmlega hvað af gögnum þínum er sent til Facebook eða í hvaða tilgangi Facebook notar þau gögn.
Í hverju tilfelli, er IP tölu þinni og – samkvæmt Facebook – upplýsingum um heimsóttar vefsíður, dagsetningu og tíma heimsóknarinnar og öðru vafra tengdum uppýsingu miðlað til þeirra.
Þú getur fundið nánari upplýsingar um þetta á þessari slóð á Facebook: https://www.facebook.com/help/186325668085084
Ef þú vilt ekki að Facebook tengi heimsókn þína til heimsíðna okkar við Facebook aðgang þinn þá verður þú að aftengjast Facebook notandaaðgangi þínum áður en þú tengist vefsíðum okkar.
Þú getur fundið ítarlegri upplýsingar um söfnun, geymslu og notkun þinna persónlegu gagna af hálfu Facebook og þær stillingar sem í boði eru til að vernda þín persónulegu gögn á Facebook hér:https://www.facebook.com/about/privacy/
Útgefið: maí 2018